Home Fréttir Í fréttum 100 milljónir í að flýta lagningu jarðstrengja í ár

100 milljónir í að flýta lagningu jarðstrengja í ár

83
0
Mynd: Rúnar Snær Reynisson - RÚV
Búið er að útfæra það hvernig 100 milljónum króna verður varið varðandi flýtingu á lagningu dreifikerfis raforku í jörð. Tæplega 600 milljónum verður varið í fjárfestingar vegna stjórnunar og samhæfingar innviða á árinu, samkvæmt fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gengið frá því gagnvart RARIK og Orkubúi Vestfjarða að 100 milljónirnar verði nýttar á árinu 2020 til þess að flýta mikilvægum framkvæmdum við jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku.

<>

Ráðgert er að frekari fjármunum verði veitt í verkefnið í 5 ára fjármálaáætlun 2021-2025, eins og tillögur átakshóps stjórnvalda gera ráð fyrir eftir óveðrið í desember.

Þessum 100 milljónum nú verður skipt á þennan hátt:

  • 50 m.kr. fara í strenglagningarverkefni hjá RARIK við Laxárdal og Fellsströnd í Dalabyggð, strenglögn frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar, strenglögn frá Vík að Kirkjubæjarklaustri og strenglögn frá Hvolsvelli að Þverá.
    • Alls er um 30 km að ræða af raflínu í jörð og framkvæmdakostnaður samtals 150 m.kr. Mun framlagið dekka öll þau verkefni.
  • Hjá Orkubúi Vestfjarða mun 50 m.kr. framlag ríkisins verða nýtt í að hefja að það verkefni að koma Rauðasandslínu (frá Sauðlauksdal að Rauðasandi) í jörðu í nokkrum áföngum
    • (Sauðlauksdalur – Hnjótur – Breiðavík – Örlygshöfn – Láginúpur – Breiðavík – Bjargtangar – Örlygshafnarvegur – Rauðisandur).
    • Alls er þar um 70 km að ræða og heildarfjárfestingarkostnaður um 370 m.kr.

„Þessir fjármunir munu nýtast vel strax í sumar við að hefja þær mikilvægu framkvæmdir,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Heimild: Ruv.is