Home Fréttir Í fréttum 05.05.2020 Atvikamyndavélakerfi fyrir jarðgöng

05.05.2020 Atvikamyndavélakerfi fyrir jarðgöng

117
0
Hvalfjarðargöng

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í atvikamyndavélakerfi í þrenn jarðgöng.

<>

Verkið felur í sér að útvega atvikamyndavélakerfi (AID) fyrir Hvalfjarðargöng, Norðfjarðargöng og Dýrafjarðargöng.

Jafnframt þarf að setja upp myndavélakerfin og tengja myndavélarnar inn á netkerfi viðkomandi jarðganga sem er um leið netkerfi Vegagerðarinnar og virkja kerfið. Samtals eru þessi göng 19,4 km að lengd.

Langmest umferð er í Hvalfjarðargöngum og skulu myndavélarnar vera þéttari þar en annars staðar. Uppsetningu í Hvalfirði þarf einnig að vinna á nóttunni. Myndavélarnar eru festar á kapalstiga í lofti og tengdar við netkefi viðkomandi ganga.

Helstu magntölur verksins eru:
a) Myndavélar í göngum 257 stk.
b) Myndavélar í útskotum (PTZ) 42 stk.
c) Server fyrir ADI fyrir þrenn jarðgöng 11 stk.
d) Upptökubúnaður 3 stk.
e) Tölvustrengur Cat5e 18.000 m
f) Hugbúnaður og gangsetning í hver göng 3 stk.
Verk skal vinna á staðnum og er hægt að byrja strax í einum göngum en hinum á haustmánuðum. Verki skal lokið að fullu 1. desember 2020

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.