Skóflustunga að nýjum sex deilda leikskóla sem rísa mun við Engjaland á Selfossi var tekin í gærdag, en tilboðin í bygginguna voru opnuð sama dag.
Byggingin er 1.112 m² og lóðin er rúmir 7.000 m².
Öll tilboð sem bárust voru yfir kostnaðar áætlun sem hljóðaði upp á rúmar 695 milljónir. Lægsta tilboðið kom frá byggingarfyrirtækinu Eykt.
Tilboðið hljóðaði upp á 742,3 milljónir króna.
Heimild: Dfs.is