31.3.2015
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í uppsetning nýrra girðinga á Suðursvæði 2015, auk viðhalds beitihólfa á Hellisheiði og Selvogi á árinu 2015.
Helstu magntölur eru:
Rif gamalla girðinga 1 km
Netgirðingar 10 km
Rafmagnsgirðingar 1 km
Grindarhlið 10 stk.
Nethlið 20 stk.
Prílur 1 stk.
Viðhald rafgirðinga 38 km
Viðhald netgirðinga 14 km
Viðhald girðinga í hólfum skal vera lokið 15. júní 2015. Verkinu skal að fullu lokið 15. nóvember 2015.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 30 . mars 2015. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.