Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Framkvæmdum við Suðurlandsveg miðar vel áfram

Framkvæmdum við Suðurlandsveg miðar vel áfram

229
0
Mynd: GPP /dfs.is

Það styttist í að Sunnlendingar og aðrir vegfarendur um Suðurlandsveg geti farið að nota nýjan veg milli Hveragerðis og Selfoss.

<>

Lokafrágangur á uppbyggingu hringvegarins við vesturenda framkvæmdasvæðisins stendur yfir.

Malbikun er í fullum gangi. Í samtali við Oliver Claxton, byggingarverkfræðing hjá ÍAV kemur fram að áætlað sé að ljúka við framkvæmd á Suðurlandsveginum í lok október.

Þá verður umferð hleypt á veginn, en áframhaldandi vinna verður á svæðinu og búast má við hraðatakmörkunum að hluta til eftir opnun.

Heimild: DFS.is