Home Fréttir Í fréttum 03.09.2019 Vetrarþjónusta stofnleiða í Kópavogi 2019-2022

03.09.2019 Vetrarþjónusta stofnleiða í Kópavogi 2019-2022

263
0

Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í verkið „ Vetrarþjónusta stofnleiða 2019-2022“.
Í verkinu felst hálkuvörn og snjóruðningur á helstu safngötum, tengibrautum og fjölförnum íbúa- og iðnaðargötum í Kópavogi frá hausti 2019 til vors 2022.

<>

Verkið er unnið samkvæmt tveim útkallsflokkum sem sinna vetrarþjónustunni annarsvegar frá kl. 04-18 og hinsvegar frá kl. 18-04 eftir þörfum og aðstæðum hverju sinni.

Vegalendir eru:
Útkallsflokkur 1 – 57 km
Útkallsflokkur 2 – 36 km
Útboð þetta er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Útboðsgögn verða afhent rafrænt og skulu þeir sem óska eftir útboðsgögnum fyrir verk þetta senda tölvupóst á netfangið utbod@kopavogur.is frá og með mánudeginum 29. júlí nk. Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðar vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn fyrirtækis.

Tilboð skulu hafa borist í Þjónustuver Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1, 200 Kópavogur í lokuðu umslagi merkt “Vetrarþjónusta stofnleiða”, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 3. september 2019 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.