Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Nýr Hafnavegur við Reykjanesbraut tekur á sig mynd

Nýr Hafnavegur við Reykjanesbraut tekur á sig mynd

326
0
Mynd: Vf.is /Hilmar Bragi

Íslenskir aðalverktakar hf. áttu lægsta tilboð í gerð nýrrar vegtengingar Hafnavegar við Reykjanesbraut, við hringtorg nærri Fitjum. Alls bárust fjögur tilboð og buðu Íslenskir aðalverktakar tæpar 118,9 milljónir króna í verkið. Er það 86,7% af áætluðum verktakakostnaði, sem hljóðaði upp á 137 milljónir.

<>

Framkvæmdin við nýju vegtenginguna er farin að taka á sig mynd en verkið felst í nýbyggingu vegarins á um 850 m löngum kafla, og lokun á núverandi gatnamótum Reykjanesbrautar og Hafnavegar vestan við hringtorgið, með tilheyrandi rifi malbiks og yfirborðsfrágangi umferðareyja Reykjanesbrautar, sem og landmótun og yfirborðsjöfnun utan hennar.

Á vef Vegagerðarinnar segir að verklok séu 15. september 2018. Gerð Hafnavegar skal þó lokið fyrir 15. ágúst 2018.

Heimild: VF.is