Tilboð opnuð 8. maí 2018. Hækkun og breikkun á þremur köflum Hringvegar í Öræfasveit. Kaflarnir eru beggja megin brúa yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi, Hólá og Stigá, en verið er að byggja nýjar brýr yfir þær tvær síðarnefndu. Verkinu er skipt í tvo verkhluta og helstu magntölur eru:
Verkhluti 1: Breiðamerkurlón
– Fylling úr skeringum 1160 m3
– Fylling úr námu 5790 m3
– Ræsalögn 27 m
– Styrktarlag 3340 m3
– Burðarlag 1035 m3
– Tvöföld klæðing 5690 m2
Verkhluti 2: Hólá-Stigá
– Fylling úr skeringum 2990 m3
– Styrktarlag 2785 m3
– Burðarlag 1070 m3
– Tvöföld klæðing 6050 m2
Öllum þáttum við gerð vegar við Stigá skal lokið fyrir 10. júlí 2018 og verkinu öllu fyrir 10. september 2018.
Engin tilboð bárust í verkið.