Hafnarstjórn Grindavíkur óskar eftir tilboðum í dýpkun innan Grindavíkurhafnar.
Um er að ræða stofndýpkun innan hafnar.
Helstu magntölur:
- Dýpkun innan hafnar í kóta -8,0 m
- Flatarmál dýpkunarsvæðis 4.764 m²
- Magn dýpkunarefna sem á að fjarlægja er um 13.318 m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. desember 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 16. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 3. maí 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.