Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði nýrrar brúar á Norðlingafljót á Arnarvatnsvegi.
Helstu magntölur eru:
- Grjótvörn 85 m3
- Vegrið 88 m3
- Gröftur 700 m3
- Fylling við steypt mannvirki 230 m3
- Mótafletir 266 m2
- Steypustyrktarstál 4,44 tonn
- Steypa 62,4 m3
- Stálvirki uppsetning 21,3 tonn
- Smíði timburgólf 28,4 m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. október 2018.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík frá og með mánudeginum 16. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 3. maí 2018 og verða þau opnuð þar 14:15 þann dag.