Home Fréttir Í fréttum Sigurður hættir hjá Íbúðalánasjóði

Sigurður hættir hjá Íbúðalánasjóði

278
0
Vísir.is

Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, hefur óskað eftir því við stjórn sjóðsins að láta af störfum og hefur stjórnin fallist á beiðni hans. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

<>

Stjórn Íbúðalánasjóðs mun á næstunni auglýsa starf forstjóra laust til umsóknar og mun hann fá það hlutverk að leiða breytingar sem kunna að verða á starfsemi sjóðsins við breytta skipan húsnæðismála. Þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs forstjóra mun staðgengill forstjóra, Gunnhildur Gunnarsdóttir, gegna störfum forstjóra og mun fráfarandi forstjóri verða henni til ráðgjafar.

„Sigurður hefur gegnt starfi forstjóra Íbúðalánasjóðs frá því í nóvember 2010. Stjórn Íbúðalánasjóðs þakkar Sigurði fyrir mikilvægt framlag til sjóðsins á umliðnum árum en hann hefur leitt sjóðinn í gegnum erfiðleikatímabil í kjölfar efnahagshrunsins. Afkoma sjóðsins var jákvæð árið 2014 í fyrsta sinn frá árinu 2007, útlánasafn hefur batnað og árangur náðst  í sölu fullnustueigna,“  segir Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs, í tilkynningu.

Heimild: Vísir.is