Home Fréttir Í fréttum 18.03.2026 Sveitarfélagið Árborg. „Seljavegur – Tunguvegur“.

18.03.2026 Sveitarfélagið Árborg. „Seljavegur – Tunguvegur“.

11
0
Mynd: Vísir/Einar

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í framkvæmdaverkið: „Seljavegur – Tunguvegur“.

Verkið felur í sér endurgerð á götunum Seljavegi og Tunguvegi á Selfossi. Endurnýja skal fráveitu-, vatnsveitu-, hitaveitu-, ídráttarör, ljósastaurarlagnir og ljósastaura. Verktaki skal einnig malbika götu, steypa kantsteina og malbika gangstéttar. Einnig skal helluleggja hraðahindranir, gera niðurtektir með doppuhellum og leiðarlínuhellum fyrir gangandi umferð.

Að lokum skal setja upp umferðamerki og massa umferðamerkingar. Einnig munu HS-Veitur leggja nýjar raflagnir í götuna.

Helstu áætlaðar magntölur eru:
Gröftur 5700 m³
Fylling 5200 m³
Malbik 3470 m²
Fráveita 945 m
Vatnsveita 420 m
Hitaveitulögn 476 m

Verkinu skal að fullu lokið 15. nóvember 2026.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist.

+Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 miðvikudaginn 18. mars 2026.

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafresturtilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar

 

Loading..