Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir hafnar við Klettaskóla

Framkvæmdir hafnar við Klettaskóla

242
0
MYND/REYKJAVÍKURBORG

Borgarstjóri og nemendur úr Klettaskóla tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu við skólann.

<>

Stórvirk jarðvegsvinnutæki taka við á næstu dögum og grafa fyrir 3.400 fermetra viðbyggingu og auk hennar verða gerðar breytingar á eldra húsnæði skólans. Heildarkostnaður framkvæmda er um 2,6 milljarðar króna.

Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Klettaskóla, segir að framkvæmdirnar muni gjörbylta starfi skólans til batnaðar og skapa nýja möguleika.  „Með nýbyggingu og endurbótum á núverandi húsnæði verða meiriháttar breytingar á aðstöðu, aðgengi og þjónustu við nemendur.“

Að loknum jarðvegsframkvæmdum í sumar taka byggingaframkvæmdir við með haustinu. Þær munu taka í heildina um tvö ár og verður að fullu lokið haustið 2018.

Kennslusundlaug, íþróttahús og félagsaðstaða
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að íþróttahús, tvær kennslusundlaugar og hátíðar- og matsalur komi norðvestan við gamla skólahúsið. „Austan við það mun rísa félagsmiðstöð. Verulegar endurbætur verða gerðar á núverandi húsi og ofan á það verður bætt við hæð með aðstöðu fyrir starfsfólk. Verkgreinastofur flytjast í eina smiðju og frístundaaðstaða verður þar sem nú er íþrótta- og matsalur.  Endurbætur verða gerðar á upplýsingaveri og bókasafni, gangar verða breikkaðir, anddyri stækkað og aðgengismál verða lagfærð.

Í heildina verða ferlimál bætt, leiðir innan og utanhúss styttar og gerðar greiðari. Þannig verður öll kennsla á einni hæð og allri félagsaðstöðu komið fyrir á neðri hæð hússins. Leiksvæði á lóð verður endurgert og mun það henta betur nemendum skólans.

Milduð ásýnd fyrir nærliggjandi byggð
Áhersla hefur við útfærslur að milda ásýnd nýrra húsa gagnvart aðliggjandi byggð, en nýjar byggingar verða að hluta til felldar inn í landið og þaktar með torfi. Viðbyggingin er höfð eins langt frá lóðarmörkum og mögulegt er og íþróttasalurinn niðurgrafinn til hálfs þannig að sá hluti hans sem stendur uppúr á norðurhorni lóðar samsvarar aðeins einni hæð.

Klettaskóli þjónar landinu öllu
Klettaskóli, sem áður var Öskjuhlíðarskóli og Safamýrarskóli, er sérskóli á grunnskólastigi og þjónar hann landinu öllu. Gamla skólahúsið var byggt í tveimur áföngum á árunum 1974 og 1985, en fyrirhugað var að byggja þriðja áfanga síðar og nú er loks komið að þeirri stund. Starfshópur sem vann að undirbúningi mannvirkjagerðarinnar áætlar að í náinni framtíð verði nemendur 80 – 100 talsins,“ segir í tilkynningunni.

Heimild: Visir.is