Vegagerðin býður hér með út ráðgjöf og eftirlit með malbiksyfirlögnum og yfirborðsmerkingum árin 2026 og 2027.
Um er að ræða ráðgjöf til verkkaupa og eftirlit með yfirlögnum með malbiki, hjólfarafyllingum og eða repave fyrir hvort ár, 2026 og 2027. Einnig er um ræða eftirlit með yfirborðsmerkingum yfirlagnakafla og yfirborðsmerkingum á Suðursvæði og Vestursvæði vegna yfirlagna malbiks. Mesta umfang yfirlagna með malbiki er á Höfuðborgarsvæði og Suðursvæði en umfangið er minna á Vestursvæði.
Gildistími samnings er til 15. desember 2027. Heimilt er að framlengja samninginn, tvisvar um eitt ár í senn.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 26 febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.












