Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdum við Brimketil að ljúka

Framkvæmdum við Brimketil að ljúka

84
0
Mynd: Grindavik.is

Framkvæmdir við Brimketil eru vel á veg komnar en starfsmenn ÍAV hafa undanfarið unnið að uppsetningu útsýnispalls við ketilinn ásamt því að leggja göngustíga, laga vegi og bílastæði. Stefnt er að formlegri opnun í Geopark-vikunni sem verður 29. maí – 3. júní. Einnig hefur verið unnið að nýjum bílastæðum við Reykjanesvita og þá hafa verið sett upp fræðsluskilti um jarðfræði, náttúru og sögu svæðisins.

<>

Íslenskir aðalverktakar birtu þetta myndband á Facebook-síðu sinni á dögunum sem sýnir á skemmtilegan hátt hversu mögnuð framkvæmd þetta er, en starfsmenn þeirra hafa fengið yfir sig nokkrar gusur af sjó meðan á framkvæmdunum hefur staðið:

Heimild: Grindavík.is