Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði 2017.
Helstu magntölur eru:
Heflun axla 13,7 km
Hjólfarafylling með flotbiki 156.837 m
Afrétting með flotbiki, axlir og sigkaflar 26.352 m
Afrétting með kaldbiki, axlir og sigkaflar 25.111 m
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðarinni Breiðumýri 2 á Selfossi, Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Miðhúsavegi 1 á Akureyri. Búðareyri 11–13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.