Hafnarsjóður Norðurþings óskar eftir tilboð í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:
- · Steypa rafbúnaðarhús, stöpla, brunna og polla.
- · Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn.
- · Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum
- · Jafna undir þekju
- · Steypa þekju um 4.000 m2
- · Raforkuvirki
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2017.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7–9 á Húsavík og hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 28. mars 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.