Efnisvinnsla á Suðursvæði 2017
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á Suðursvæði á árinu 2017.
Helstu magntölur:
- Klæðingarefni 11/16 mm 4.500 m3
- Klæðingarefni 8/11 mm 11.500 m3
- Klæðingarefni 4/8 mm 3.000 m3
- Þvottur á klæðingarefni 19.000 m3
- Bergskeringar 7.000 m3
- Malarslitlag 13.100 m3
- Efra burðarlag 0/22 mm 8.000 m3
Verki skal að fullu lokið 1.september 2017.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 (móttaka) í Reykjavík frá og með 13. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 28. mars.2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.