Home Fréttir Í fréttum Samningur um Sultartanga í burðarliðnum

Samningur um Sultartanga í burðarliðnum

11
0
Frá Sultartangastöð

Landsvirkjun hefur á undanförnum vikum unnið að undirbúningi framkvæmda við víkkun aðrennslisganga Sultartangastöðvar. Tilboð í verkið voru opnuð þriðjudaginn 3. mars. Þrjú tilboð bárust og í dag, 10. mars, hefur bjóðendum verið tilkynnt að stefnt sé að því að ganga til samninga um verkefnið.

Framkvæmdir munu hefjast 1. apríl. Á meðan á þeim stendur verður Sultartangastöð tekin úr rekstri en gert er ráð fyrir að verkið taki um hálft ár og að stöðin komi því aftur í rekstur 1. október.

Heimild: Landsvirkjun