Home Fréttir Í fréttum UUA: Byggingaráform Sindragötu 4a á Ísafirði standa

UUA: Byggingaráform Sindragötu 4a á Ísafirði standa

11
0
Frá framkvæmdum við grunn Sindragötu 4a. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál, UUA, hafnaði í vikunni kröfu 14 íbúðareigenda á Sindragötu 4 og Aðalstræti 8 og 10 á Ísafirði , sem vildu að nefndin felldi úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar frá 11. desember 2025 um að samþykkja byggingaráform á lóð nr. 4a við Sindragötu.

Niðurstaðan er því að samþykki byggingarfulltrúans frá desember 2025 fyrir þriggja hæða fjölbýlishúsi með 9 íbúðum á lóðinni Sindragata 4a stendur óhögguð.

Garðar Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Vestfirskra verktaka, sem hófu framkvæmdir á lóðinni í fyrra, segir að nú verði hægt að halda áfram framkvæmdum á næstu vikum þar sem frá var horfið.

Nefndin hafði á fyrri stigum málsins á síðasta ári fellt byggingaáformin úr gildi þar sem rannsókn og undirbúningi hennar hjá Ísafjarðarbæ var áfátt. Nú hafði verið úr því bætt og fyrir lág umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. nóvember 2025, um samræmi framkvæmdanna við skipulag á svæðinu.

Kærendur töldu hin samþykktu byggingaráform fela í sér brot á hverfisvernd aðalskipulagsins og að byggingarnar gætu ekki samræmst því að vernda götumynd og ásýnd Aðalstrætis.

Um það segir í úrskurði UUA að lóðin Sindragata 4a sé við hverfisverndaða svæði en samt utan þess og því nái verndin ekki til byggingarreitsins.

„Með vísan til þess sem að framan er rakið verður hin kærða ákvörðun ekki álitin haldin neinum þeim form- eða efnisannmörkum sem varðað geta gildi hennar og verður kröfu kærenda um ógildingu hennar því hafnað.“

Heimild: BB.is