Home Fréttir Í fréttum 28.03.2017 Ofanflóðavarnir á Patreksfirði-Uppsetning snjósöfnunargrinda og vindkljúfa ofan upptakasvæða Urða og Klifs

28.03.2017 Ofanflóðavarnir á Patreksfirði-Uppsetning snjósöfnunargrinda og vindkljúfa ofan upptakasvæða Urða og Klifs

100
0
Patreksfjörður

20499 – Ofanflóðavarnir á Patreksfirði-Uppsetning snjósöfnunargrinda og vindkljúfa ofan upptakasvæða Urða og Klifs

Snjóflóðavarnir á Patreksfirði
Uppsetning snjósöfnunargrinda og vindkljúfa ofan upptakasvæða Urða og Klifs
Útboðsnúmer: 20499
Dagsetning opnunar: 28. mars 2017
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið
„Snjóflóðavarnir á Patreksfirði, uppsetning snjósöfnunargrinda og vindkljúfa ofan upptakasvæða Urða og Klifs“.
Verkið er tvíþætt og felst annars vegar í að setja upp snjósöfnunargrindur úr stáli, (snow fences), og hins vegar að setja upp fimm vindkljúfa úr stáli og timbri á steypta undirstöðu ofan upptakasvæða Urða og Klifs, á Patreksfirði. Leyfilegt er að bjóða frávik frá steyptri undirstöðu vindkljúfa ef hönnuðir samþykkja lausn.
Uppsetningarverktaki fær efni til uppsetningar afhent á tilgreindu lagersvæði á Patreksfirði, sjá nánari lýsingu í útboðsgögnum.
Gert er ráð fyrir því að í fyrstu verði borað fyrir undirstöðum snjósöfnunargrindanna samhliða smíði þeirra. Áformað er að koma fyrir um 240 m af stálgrindum, en hæð þeirra er 3,0 m.
Tilgangur varnanna er að minnka snjósöfnun á upptakasvæðum annars vegar og draga úr hengjumyndun við upptakasvæðin hins vegar.
Helstu magntölur:
Snjósöfnunargrind (3,0 m) – 240 m
Vindkljúfur (3,0 m) – 5 stk
Lok framkvæmdatíma er 30. september 2017.
Kynningarfundur verður 16. mars 2017 kl. 11.
Fyrirspurnarfrestur er 21. mars 2017.
Svarfrestur er 24. mars 2017.
Útboðsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa frá og með þriðjudeginum 7. mars 2017.