F.h. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Gervigras 2017 – Reykjavíkurborg, útboð 13914
Um er að ræða endurnýjun á gervigrasyfirborði þriggja knattspyrnuvalla í fullri stærð hjá Fram í Safamýri, ÍR í Breiðholti og Leikni í Breiðholti ásamt endurnýjun á föstum vallarbúnaði.
Helstu magntölur eru:
• Heildarflatarmál vallanna þriggja 24.285 m2
• Rif og förgun núv. yfirborðsefnis 24.285 m2
• Mörk ásamt festingum 6 stk.
• Hornfánar ásamt festingum 18 stk.
• Viðhaldsbúnaður 3 stk.
Lokaskiladagur verksins er 4. ágúst 2017.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá og með þriðjudeginum 14. mars 2017, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nauðsynlegt er að nota Internet Explorer.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 11:00 miðvikudaginn 29. mars 2017.