Home Fréttir Í fréttum 28.03.2017 Bakkaborg, endurgerð lóðar 2017 – 2. áfangi

28.03.2017 Bakkaborg, endurgerð lóðar 2017 – 2. áfangi

236
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Bakkaborg, endurgerð lóðar 2017 – 2. áfangi. Útboð nr. 13892.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00 mánudaginn 13. mars 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Nauðsynlegt er að nota  Internet Explorer.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar . Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:00 þriðjudaginn 28. mars 2017.

Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið er 2. áfangi (loka) í endurgerð lóðar leikskólans Bakkaborgar við Blöndubakka 2, 109 Reykjavík.  Í þessum áfanga er öll lóðin undir nema portið mill skólabygginga sem var gert í 1. áfanga, um það bil 2.900 m².  Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæðum.  Leiktæki verða endurnýjuð að hluta, aðgengi fyrir alla verður bætt.  Ný geymsla fyrir úti leiktæki verður sett upp.  Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, malbikun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnin af verktökum / aðilum á vegum söluaðila (leiktæja og yfirborðsefna) samhliða öðrum verkþáttum verktaka.
Verktaki þarf að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 1. júlí 2017 vegna uppsetningar leiktækja, fallvarnarefnis og gervigrass.  Uppsetning þeirra verður á vegum söluaðila búnaðarins á tímabilinu 2. júlí til 5. ágúst 2017.