Hvítársíðuvegur (523) um Bjarnastaði
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á 2,42 km kafla á Hvítársíðuvegi (523) og 0,65 km kafla Reykholtsdalsvegar (519). Hvítársíðuvegarkaflinn er að mestu í landi Bjarnastaða en Reykholtsdalsvegarkaflinn er frá Hálsasveitarvegi að Hvítársíðuvegi.
Helstu magntölur eru:
Skering 6.040 m3
Fylling 8.300 m3
Fláafleygar 6.040 m3
Ræsalögn 108 m
Endafrágangur ræsa 14 stk.
Efnisvinnsla 0/22 mm 4.000 m3
Neðra burðarlag 10.950 m3
Efra burðarlag 3.530 m3
Tvöföld klæðing 20.710 m2
Frágangur fláa 36.160 m2
Bitavegrið 244 m
Útlögn klæðingar skal lokið fyri 1. september 2015. Öllu verkinu skal lokið fyrir 15. september 2015
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 20. apríl 2015. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
Heimild: Vegagerðin