Home Fréttir Í fréttum 18.05.2026 RARIK ohf. Strenglögn – Vatnshamrar að Ferjubakka – Vesturlandi.

18.05.2026 RARIK ohf. Strenglögn – Vatnshamrar að Ferjubakka – Vesturlandi.

82
0
Mynd: RARIK

RARIK ohf., kt. 520269-2669, óskar eftir tilboðum í útboðsverkið: Strenglögn – Vatnshamrar að Ferjubakka – Vesturlandi.

Um tvo verkstaði er að ræða þ.e. strenglögn frá Vatnshömrum að Hvítá og frá Ferjubakka að Hvítá. Strenglögnin er hrein stofnlögn og því engar jarðspennistöðvar á leiðinni.

Háspennustrengir eru 3 stk 1x300q 36 kV um 6.3 km og 3 stk 1x240q 36 kV um 6.3 km. Þannig að plægja þarf í heildina 6 stk strengi samhliða á um 6.3 km kafla. Óskað er eftir því að lagt verði ljósleiðararör samhliða verkinu fyrir Rarik.

Gengið er út frá því að verkið hefjist 22. júní og sé lokið 17. ágúst 2026.

Útboðsgögn afhent: 14.04.2026 kl. 09:39
Skilafrestur 18.05.2026 kl. 14:00

Tilboðum skal skilað inn með rafrænum hætti á útboðsvef RARIK.

Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.

Útboðsgögn og allar frekari upplýsingar má finna á útboðsvef RARIK