Home Fréttir Í fréttum Þjótandi á Hellu fær tvær nýjar vélar frá Kraftvélum

Þjótandi á Hellu fær tvær nýjar vélar frá Kraftvélum

247
0
Á meðfylgjandi mynd má sjá Ólaf Einarsson hjá Þjótanda taka við vélinni frá Gylfa Haukssyni (t.h.) sölumanni Kraftvéla. Einnig er á myndinni Eyþór Tómasson hjá Þjótanda.

Þjótandi ehf frá Hellu fengu afhentar tvær nýjar vélar á dögunum.  Það voru Komatsu PC240LC-11 og Dynapac CA3500D valtari.

<>

Komatsu vélin er sérlega glæsileg.  Hún er um 26 tonn á 800 mm spyrnum.  Hún er einnig með tveimur glussalögnum, auka vinnuljósum að framan og aftan og myndavélakerfi með myndavélum bæði á hlið og að aftan.  Fullar rúlluvarnir á undirvagni. 
Hér er um að ræða fullbúna vél.

Dynapac CA3500D valtarinn er jarðvegsvaltari.  Þetta er vel útbúin vél, ein sú síðasta sem kom af bandinu hjá Dynapack án adblue kerfis.  Hann er 12 tonn að þyngd, útbúinn þjöppumæli, spólvörn með tromlu uppá 1520mm í þvermál og comfort húsi.  Sannarlega glæsileg vél í alla staði

Heimild: Kraftvélar.is