Home Fréttir Í fréttum Dráttur á endurnýjun flugskýla fyrir kafbátaleitarvélar

Dráttur á endurnýjun flugskýla fyrir kafbátaleitarvélar

134
0
Mynd: RÚV

Óvíst er hvernær ráðist verður í framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, vegna komu P-8 kafbátaleitarflugvéla bandaríska hersins til landsins, þar sem ekki er enn búið að samþykkja frumvarp um fjárframlög til varnarmála á Bandaríkjaþingi.

<>

Nýtt fjárhagsár Bandaríska ríkisins hófst þann 1. október síðastliðinn og var gert ráð fyrir að verkefni á vegum hersins, á Keflavíkurflugvelli, hæfust formlega eftir þann dag, af því hefur þó ekki orðið þar sem frumvarpið hefur ekki verið samþykkt.

Í svari Utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Suðurnes.net, segir að gert sé ráð fyrir því að verkefnið komist á koppinn, en nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir. Framlög til varnarmála eru bundin bráðabirgðarheimildum sem endurnýja þarf í apríl næstkomandi og því er ekki gert ráð fyrir að ráðist verði í framkvæmdir fyrir þann tíma.

Varn­ar­málaráðuneyti Banda­ríkj­anna gerir ráð fyrir að kostnaður við breytingar á flugskýlum á Keflavíkurflugvelli, vegna komu P-8 flugvéla til landsins, muni nema tæplega þremur milljörðum króna. Þar af er gert er ráð fyr­ir að um 650 millj­ón­ir króna fari í að koma upp nauðsyn­legri hreinsiaðstöðu og um 200 millj­ónir í skipu­lags- og hönn­un­ar­vinnu.

Heimild: Sudurnes.net