Home Fréttir Í fréttum Þriggja milljarða króna gjaldþrot dótturfélags Atafls

Þriggja milljarða króna gjaldþrot dótturfélags Atafls

336
0

Þrotabú Hafhúsa ehf., dótturfélags Atafls, sem áður hét Keflavíkurverktakar hf., hefur verið gert upp, en félagið sem áður hét Athús ehf. átti meðal annars tugi íbúða við Norðurbakka 1-3 í Hafnarfirði og fjölda raðhúsa og lóða við Byggakur á Arnarneslandi í Garðabæ.

<>

Alls fengust 1,2 milljarðar eða 38,78% greiddar upp í veðkröfur, en þær námu alls 3,2 milljörðum króna. Hins vegar fékk ekkert upp í almennar kröfur, en þær námu rúmum 24 milljónum króna.

Forsaga málsins er sú að félagið skuldaði Kaupþingi 2,7 milljarða króna við fall bankans, en bankinn fór fram á að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta í apríl 2012. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði hins vegar þeirri beiðni í mars 2013 og var það ekki fyrr en með úrskurði Hæstaréttar sem félagið var keyrt í þrot.

Verktakafyrirtækið Atafl varð gjaldþrota árið 2010.

Heimild: Sudurnes.net