Home Fréttir Í fréttum 480 milljónir í menningarhús á Egilsstöðum

480 milljónir í menningarhús á Egilsstöðum

95
0
480 milljónir verða lagðar í menningarhús á Egilsstöðum samkvæmt viljayfirlýsingu sem Illugi Gunnarsson, Mennta- og menningarmálaráðherra, og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, undirrituðu í morgun.

Málið má rekja aftur til ársins 1999 en þá ákvað ríkisstjórn að fé skyldi lagt í menningarhús á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum og er uppbyggingu enn ólokið á Egilsstöðum og Sauðárkróki.

<>

288 milljónir frá ríkinu í verkefnið

Samkvæmt viljayfirlýsingunni sem undirrituð var í morgun greiðir ríkið 60% af kostnaði eða að hámarki 288 milljónir og er stefnt að því að fé verði lagt í verkefnið árið 2018. Fljótsdalshérað greiðir afganginn eða 40% og ef framkvæmdir fara fram úr áætlun greiðir sveitarfélagið einnig það sem út af stendur. Fjármagn sem Fljótsdalshérað hefur þegar lagt í Sláturhúsið telst hluti af 192 milljóna framlagi sveitarfélagsins. Ekki fékkst uppgefið í morgun hve há sú fjárhæð er en ljóst er að vel á fjórða hundað milljónir verða lagðar í húsin tvö á næstu árum.

Meðal annars verður gerður fullkominn sviðslistasalur í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þannig á Sláturhúsið að verða fjölnota menningarhús fyrir sviðslistir, tónlist, sýningar, vinnustofur, ungmennastarf og þar á auk þess að gera gestaíbúð fyrir listamenn. Lokið verður við Safnahúsið með viðbyggingu og þar með bætt aðstaða fyrir safnkost, sýningar, fyrirlestra, stafsfólk og fræðimenn.

Ekki nýtt stórt menningarhús

Upphaflegar hugmyndir gengu út á að reisa nýtt stórt menningar- og stjórnsýsluhús í miðbæ Egilsstaða en horfið var frá þeim hugmyndum þar sem ljóst þótti að mikill kostnaður hefði fallið á sveitarfélagið.

Heimild: Ruv.is