Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Framkvæmdir að próteinverksmiðju hafnar á Sauðárkróki

Framkvæmdir að próteinverksmiðju hafnar á Sauðárkróki

317
0

Byrjað er að grafa fyrir undirstöðum að1700fm húsi við mjólkursamlag KS á Sauðárkróki. Þar er áætlað að framleiða próteinduft úr mysu sem endar væntanlega í orkudrykkjum fólks víða um heim.

<>

01-10-2016-mjolkursamlagi-ks-2

Nýting mysupróteins hefur ekki verið mikil hingað til hjá KS en breyting verður á í framtíðinni með tilkomu hússins.

01-10-2016-mjolkursamlagi-ks-1

„Próteinframleiðslan mun nota 1/3 af húsnæðinu en rest fer undir lager, umbúðir og slíkt. Þar er einnig möguleiki að hafa einhverja framleiðslu ef eitthvað kemur upp,“ sagði Magnús Freyr Jónsson forstöðumaður samlagsins við Feyki fyrr í haust. Vonast er til að framleiðsla verði komin af stað á sama tíma að ári.

Heimild: Feykir.is