
Tréverk ehf. hefur undirritað samning við Dalvíkurbyggð um byggingu nýs vatnstanks við Upsa á Dalvík.
Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd sem felur í sér jarðvinnu, lagningu lagna og uppsteypu á nýjum vatnstanki. Tankurinn verður um 900 m³ og mun styrkja vatnsöflun og rekstraröryggi vatnsveitu sveitarfélagsins.
Framkvæmdir hefjast á næstunni og er stefnt að því að taka tankinn í notkun haustið 2026. Lokafrágangur verksins mun síðan fara fram á árinu 2027.
Heimild: Treverk.is











