Home Fréttir Í fréttum 21.04.2026 Súða­vík – Þekja og lagn­ir 2026

21.04.2026 Súða­vík – Þekja og lagn­ir 2026

40
0
Mynd: Sudavik.is

Súðavíkurhöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Súðavík – Steypt þekja og lagnir 2026“.

Helstu verkþættir eru:
• Steypa upp vatns- rafbúnaðarhús.
• Grafa skurði, leggja ídráttarrör og vatnslagnir.
• Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu.
• Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1522 m2.

Verkinu skal lokið eigi síðan en 1. nóvember 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 30. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.