Home Fréttir Í fréttum Iðnafl kaupir Gólflagnir

Iðnafl kaupir Gólflagnir

154
0
Guðni Rafn Eiríksson og Ármann Andri Einarsson, eigendur Iðnafls. Ljósmynd: Aðsend / Nína Björk Hlöðversdóttir

M Invest ehf., móðurfélag Iðnafls, hefur náð samkomulagi um kaup á Gólflögnum ehf., rótgrónu fyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði iðnaðar gólfefna.

Iðnafl samanstendur af fyrirtækjunum Metatron og SS Gólf sem M Invest ehf. keypti árið 2023. Metatron sérhæfir sig í sölu, lagningu og viðhaldi á gervigrasi fyrir íþróttavelli og almenningssvæði ásamt flóðlýsingarkerfum keppnisvelli, æfingarvelli og stærri athafnarsvæði. SS Gólf sérhæfir sig í sölu og lagningu epoxy gólfa og annara iðnaðargólfefna.

Árið 2025 stofnaði Iðnafl Golfstofuna sem býður upp á garðagrös ásamt golfvallar flatir og teiga úr gervigrösum, sömu kerfi og þróuð voru fyrir TGL keppnina, sem Tiger Woods og Rory McIlroy fara fyrir. Á síðasta ári var einnig Iðnafl eignir, sem stundar útleigu á ýmsum tækjabúnaði, settar á fót.

„Kaupin á Gólflögnum fellur vel að stefnu M Invest og Iðnafls samstæðunnar á markaði með þjónustu, sölu og lausnir á fyrirtækjamarkaði. Áhersla verður lögð á að þjónusta núverandi og nýja viðskiptavini samstæðunnar enn betur,“ segir Ármann Andri Einarsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Iðnafls.

Gólflagnir ehf., sem bjóða upp á allar gerðir epoxy og polyurethane gólfefna, veltu 330 milljónum króna og högnuðust um 40 milljónir á árinu 2024, samkvæmt síðasta birta ársreikningi. Ársverk voru 11 á árinu 2024.

Seljendur Gólfalagna eru Níels Steinar Jónsson, Magnús Valdimarsson, og Anna María Clausen. Níels Steinar átti 57% hlut í félaginu, Magnús 33% hlut og Anna María 10% hlut.

Heimild: Vb.is