Home Fréttir Í fréttum Skiptinemar á gistiheimilum á meðan bygging nýrra stúdentagarða tefst

Skiptinemar á gistiheimilum á meðan bygging nýrra stúdentagarða tefst

4
0
Loftmynd af Háskólanum á Akureyri og svæðinu þar sem til stendur að byggja nýja stúdentagarða, meðfram Dalsbraut á austurjaðri háskólasvæðisins. Aðsent – FÉSTA

Nemendur við Háskólann á Akureyri geta ekki flutt inn í nýjar stúdentaíbúðir á árinu, eins og til stóð. Yfir 80 hafa verið á biðlista síðustu misseri og skiptinemar hafa dvalið á gistiheimilum.

Bygging nýrra stúdentagarða við Háskólann á Akureyri er talsvert á eftir áætlun. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta í bænum segir mikla þörf fyrir íbúðirnar og biðlistar hafi lengst.

„Þetta hefur gengið hægar en við kannski upphaflega áætluðum. Hvort þær áætlanir okkar 2023 voru raunhæfar, held ég ekki,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri.

Hönnunarsamkeppni um byggingu stúdentagarða, austanmegin á háskólasvæðinu og meðfram Dalsbraut, lauk í febrúar 2024. Í vinningstillögunni voru teiknaðar þrjár byggingar – með möguleika á þeirri fjórðu síðar, um 170 leigurými, ýmist íbúðir eða herbergi. Væntingar voru um að stúdentar gætu flutt inn á þessu ári en nú er ljóst að af því verður ekki.

Mikil vöntun og skiptinemar á gistiheimilium
Mikil vöntun hefur verið síðustu ár á einstaklingsherbergjum, stúdíó- og tveggja herbergja íbúðum. Sem er það sem nú að að bæta.

Um 80 hafa verið á biðlista síðustu misseri og fjöldi erlendra nema hefur ekki fengið stúdentaíbúð.

„Plús það að erlendir skiptinemar sem við höfum ekki verið að ná að sinna í gegnum árin, þeim er dreift hérna um gistiheimili bæjarins.“

festaha.is / Nordic Office of Architecture

Stefna að því að fyrstu stúdentar flytji inn haustið 2028
Nú segir Jóhannes líklegt að nemar gætu flutt inn skólaárið 2028-29. Síðast var byggt undir háskólanema á Akureyri fyrir um tveimur áratugum og síðan hefur margt breyst.

„2025 hefur farið í það að hanna þetta ásamt öðrum, með hönnuðum og erum svona á síðustu, lokametrunum núna í að klára hönnun og útboðsgögn,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri.

Heimild: Ruv.is