Hafnarfjarðabær, auglýsir eftir tilboðum í verkið:
KNATTHÚS HAUKA – 2. ÁFANGI, INNANHÚSFRÁGANGUR
Verkið felur í sér innanhúsfrágang í þjónustubyggingu knattsalar við Ásvelli 1 í Hafnarfirði. Í þjónustubyggingunni er forsalur sem þegar hefur verið tekinn í notkun, en gólfið og veggir á salernum verða flísalögð .
Annar hluti þjónustubyggingarinnar sem nú er ófrágenginn að innan skal fullkláraður. Um er að ræða frágang búningsherbergja fyrir iðkendur, kennara, dómara og starfsfólk, ásamt áhaldageymslu, ræstingu og öðrum rýmum.
- Ófrágenginn hluti þjónustubyggingarinnar er 536 m² og
- Forsalurinn er 200 m².
Útboðið er almennt opið útboð.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða aðgengileg á https://hafnarfjordur.utbodsgatt.is/knatthus-hauka-innanhusfragangur-2026
Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins eigi síðar en 27. mars 2026, kl. 11:00.












