Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Ratcliffe byggir glæsileg veiðihús

Ratcliffe byggir glæsileg veiðihús

57
0
Nýtt veiðihús verður byggt í landi Einarsstaða. Þar verða tvær svítur og tíu herbergi. Tölvumyndir/Six Rivers Project

Verktakar á vegum breska kaupsýslumannsins Jims Ratcliffes eru nú að störfum á tveimur stöðum við laxveiðiár hans. Þegar er byrjað að byggja nýtt veiðihús við Hafralónsá í Þistilfirði og í vor verður byrjað að byggja nýtt veiðihús við Hofsá í Vopnafirði.

Til stóð að byggja nýtt veiðihús skammt frá því eldra við Hofsá en í fyrra var horfið frá þeim áformum. Þess í stað var ákveðið að byggja húsið í landi Einarsstaða, ofar í dalnum nálægt Bustarfelli, en það er ein þeirra jarða sem Six Rivers hefur eignast á síðustu árum.

Veiðihúsið verður við bakka Hofsár. Skipulagsvinnu er lokið og búist er við því að hægt sé að hefja framkvæmdir þegar skipulagið hefur verið auglýst hjá Skipulagsstofnun.

Heimild: Mbl.is