
Húsnæði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi fær 5.200 fermetra viðbyggingu og ráðist verður í gagngerar endurbætur á meirihluta eldra húsnæðis stofnunarinnar. Þetta segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Fyrsti áfangi framkvæmdanna, endurnýjun og stækkun húsnæðis heilsugæslu, geðteymis og heimahjúkrunar, hefur þegar verið fjármagnaður. Vinna hefst strax og áætlað er að áfanganum ljúki um mitt næsta ár.
Ný 5.200 fermetra norðurálma verður reist í næsta áfanga og í þriðja áfanga verða endurbætur gerðar á austurálmu sem hýsir m.a. göngudeildir og skrifstofur. Áætlaður heildarkostnaður er 8,5 til 13 milljarðar. Ráðgert er að öllum framkvæmdum verði lokið árið 2034.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að endurnýjun og stækkun húsnæðis HSU sé löngu tímabær þar sem eldra húsnæði, annars vegar frá 1981 og hins vegar frá 2008, uppfylli ekki nútímakröfur um öryggi og gæði. Þá hafi íbúum á Suðurlandi fjölgað hratt síðustu ár og álag á heilbrigðisþjónustu aukist vegna mikillar ferðaþjónustu og umfangsmikillar frístundabyggðar.
„Þessar fréttir eru svo sannarlega gleðiefni. HSU þjónar stóru og fjölbreyttu svæði og hefur starfsemi stofnunarinnar vaxið hratt samhliða fjölgun íbúa og aukinni umferð ferðamanna. Fyrirhugaðar framkvæmdir skipta því miklu máli, ekki bara fyrir húsnæðið sjálft, heldur fyrir þá þjónustu sem við viljum af heilum hug geta veitt til framtíðar,“ er haft eftir Díönu Óskarsdóttur, forstjóra HSU.
Heimild: Ruv.is











