Home Fréttir Í fréttum 05.03.2026 Hagahverfi – Jarðvinna – 1. áfangi 2026.

05.03.2026 Hagahverfi – Jarðvinna – 1. áfangi 2026.

31
0
Hornafjörður

Sveitarfélag Hornafjarðar óskar eftir tilboðum í verkið ”Hagahverfi – Jarðvinna – 1. áfangi 2026”. Verkið felst í jarðvinnu í hluta gatna nýs íbúðarhverfis á Höfn sem nefnist Hagahverfi.

Göturnar sem um ræðir eru Hrosshagi og Lambhagi. Um er að ræða gröft fyrir undirfyllingum gatna, fyllingar og farg ásamt lagningu jarðvegsdúks undir fyllingar og frágang á sigplötum í fyllingar o.fl. skv. teikningum.

Útboðsgögn

Útboðsgögn, dagsett í janúar 2026, og bera nafnið:

Hagahverfi – 1. áfangi – jarðvinna og sundurliðast eftirfarandi:

  • Útboðs og verklýsing gerð af Verkhof ehf.
  • Teikningar og gerðar af Verkís ehf
  • Tilboðseyðublað ásamt tilboðsskrá

Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds, með því að senda fyrirspurn á neðangreint netfang og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Hagahverfi – 1. áfangi – jarðvinna“.

Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Ósk um útboðsgögn skal senda á: utboð@hornafjorður.is til vara vignir@hornafjordur.is Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Hagahverfi – 1. áfangi – jarðvinna“.

Tilboð skulu berast fyrir 5. mars 2026 kl.14:00.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.