
Áform eru nú um að tvö hús við Grænumörk á Selfossi, klasar leiguíbúða fyrir eldri borgara, verði á næstunni rifin, til þess að rýma fyrir stærri byggingum. Átta íbúðir eru í hvoru þessara húsa og nú þegar standa nokkrar þeirra auðar.
Fólki sem þar hefur búið í leiguíbúðum í eigu Sveitarfélagsins Árborgar hefur að hluta verið útvegað annað húsnæði. Fleiri flytja á næstunni.
„Svæðið við Grænumörk er dýrmætt og það viljum við nýta betur. Þarna austarlega í bænum, bæði við Grænumörk og Austurveg, er fjöldi íbúða og sennilega vel á annað hundrað íbúðir þar sem fjöldi eldra fólks býr. Þarna er öllu vel fyrir komið og stutt í alla þjónustu, svo sem verslanir og heilbrigðisstofnun,“ segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg.
Heimild: Mbl.is











