Framkvæmdir eru hafnar við gatnamót Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis. Verkið felst í gerð hringtorgs á mótum þessara tveggja vega í Garðabæ og tenginga við það ásamt gerð göngustíga.
Mun Flóttamannavegur breikka á köflum og verður legu hans breytt lítillega.
Vegagerðin og Garðabær buðu framkvæmdirnar út sl. haust. Verktakafyrirtækið Óskatak átti lægsta tilboð, 115,3 milljónir króna, og var því tekið.
Tenging úr hverfinu inn á Flóttamannaveginn er gerð að eindreginni ósk Garðabæjar.
Nú er aðeins ein tenging inn í hverfið, þ.e. til og frá Reykjanesbraut, nálægt Kauptúni. Þar er oft þung umferð á álagstímum.
Heimild: Mbl.is












