Home Fréttir Í fréttum Skel selur 49 íbúðir í Stefnisvogi fyrir 4,2 milljarða

Skel selur 49 íbúðir í Stefnisvogi fyrir 4,2 milljarða

71
0
Ljósmynd: Aðsend mynd

Skel fjárfestingarfélag hefur nú selt meira en helming íbúða sinna í Stefnisvogi.

Skel fjárfestingarfélag undirritaði í vikunni kaupsamning um sölu á 49 íbúðum í Stefnisvogi fyrir samtals 4.192 milljónir króna. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu Skeljar en ekki er greint frá hver kaupandinn er.

Við uppgjör viðskiptanna lækka skuldir fjárfestingarfélagsins um 3,5 milljarða króna.

Skel keypti 105 íbúðir að Stefnisvogi 2-36 í tveimur viðskiptum á árunum 2023 og 2024 fyrir samtals um 9,6 milljarða króna. Skel afhenti helmingshlut sinn í Reir þróun sem gagngjald í kaupunum.

Skel segir að kaupin hafi verið liður í því að þroska efnahagsreikning félagsins, þannig að þróunareignir urðu að fullbúnum fasteignum með þekkt markaðsverð.

Skel seldi 17 íbúðir í Stefnisvogi á árinu 2025, þar af 13 til Búseta húsnæðisssamvinnufélags í apríl síðastliðnum fyrir 1,1 milljarð króna.

Heimild: Vb.is