Félag í eigu Jóns Hilmars Karlssonar er seljandi í viðskiptunum.
C Holding ehf., móðurfélag flutningafyrirtækisins Torcargo, hefur undirritað kaupsamning um fasteignina Norðurbakka 1 í Þorlákshöfn af Faxa ehf. Samkvæmt kaupsamningnum er um að ræða atvinnuhúsnæði á lóðinni Norðurbakki 1 og nemur kaupverð 800 milljónum króna.
Jón Hilmar Karlsson, sonur Karls Wernerssonar, er eigandi Faxa ehf.
Í samningnum kemur fram að afhending eignarinnar eigi að fara fram 20. janúar 2026 og að útgáfa afsals sé miðuð við 10. mars 2026. Greiðslutilhögun er tvískipt; stærstur hluti kaupverðs við afhendingu og eftirstöðvar við útgáfu afsals.
Eignin sem seld er er skráð sem byggð árið 2024 og er birt stærð hennar 3.297,9 fermetrar. Í samningnum eru einnig tilgreind opinber matsverð, þar á meðal fasteignamat og lóðamat.
Faxar eignaðist Norðurbakka 1 haustið 2023, þegar Kambar afsalaði félaginu eigninni. Þá var kaupverð tilgreint 52 milljónir króna í afsali.
Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá árið 2023 ákváðu Kambar að byggja glugga- og hurðaverksmiðju í Þorlákshöfn en fyrirtækið var stofnað í byrjun árs 2022 þegar fyrirtækin Samverk glerverksmiðja, Trésmiðjan Börkur og Gluggasmiðjan á Selfossi.
Árið 2020 hafði hluti af rekstri Sveinatunga sameinast við rekstur Samverks.
Karl Wernerson fjárfestir er stofnandi Kamba.
Samkvæmt tilkynningu frá félaginu árið 2023 var staðsetning verksmiðjunnar í Þorlákshöfn valin til að kolefnissporið yrði sem minnst.
Heimild: Vb.is












