Engin vinna er hafin hjá Reykjavíkurborg við að kanna jarðveg á Geirsnefi fyrir lagningu borgarlínu. Hundruð mengandi bíla voru urðaðir í landfyllingunni á Geirsnefi.
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, sem sér um framkvæmd borgarlínu, segir það á herðum borgarinnar að sinna hreinsunarstarfi áður en kemur að lagningu borgarlínu þar árið 2029.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hafa jarðvegsrannsóknir ekki farið fram fyrir framkvæmdirnar en til stendur að gera þær.
Bílarnir hafa legið í jörðu frá sjöunda áratug síðustu aldar eða í rúm 60 ár. Fram kemur í umhverfismatsskýrslu um 1. áfanga borgarlínu að áhyggjur hafi verið um að mengun í Geirsnefi muni smitast út í Elliðaár.

Urðaðir með spilliefnum
Geirsnef er vinsælt útivistarsvæði og þá sérstaklega á meðal hundaeigenda. Um er að ræða landfyllingu við ósa Elliðaáanna og í bók Arnar Sigurðssonar, bílasagnfræðings og landfræðings, sem nefnist Bílamenning, er vísað til orða Hjalta Skaftasonar, sem stjórnaði um tíma krananum sem heygði gömlu bílana í Geirsnefinu.
Eftir honum er haft að bílarnir hafi ekki verið færri en 600 sem urðaðir voru í nefinu með öllu því sem í þeim leyndist: „vélum, smurolíu, rafgeymum og eldsneyti. Á síðari árum hefur orðið vart við torkennilega mengun á svæðinu og bendir margt til þess að hin skaðlegu efni séu nú farin að ganga fram í árnar,“ segir í bókinni sem kom út árið 2021.

Í viðtali við mbl.is fyrir 12 árum ræddi Halti um bílana og hauginn. Þar sagði Hjalti:
„Ekkert var átt við bílana áður en þeim var fleygt og þeir fóru undir torfu með hásingunum undir og vélunum í. Ég gef ekki mikið fyrir það að bílarnir hafi verið tæmdir af vökva og rafgeymar teknir úr þeim áður en þeim var lagt þarna. Það er bara lygi því ég varð ekki var við það. Kannski var búið að taka eitthvað úr sumum Vökubílunum en það var ekkert gert við bílana eftir að þeir komu út á Geirsnefið.“
Varanleg skerðing á Elliðaánum
Elliðaárnar eru á náttúruminjaskrá og í umhverfismatsskýrslu um fyrsta áfanga borgarlínu segir að verndargildi lífríkis Elliðaáa sé mikið og við framkvæmdir skerðist búsvæði þess varanlega en varanleg skerðing verður aðeins á litlu svæði.
Davíð Þorláksson hjá Betri samgöngum sagði í samtali við Morgunblaðið á laugardag að menn sem vinna að verkefninu væru meðvitaðir um að á Geirsnefi leynist úrgangur sem væri hættulegur umhverfinu og reynt verði eftir fremsta megni að raska svæðinu sem minnst þegar kemur að jarðvegsframkvæmdum fyrir borgarlínu.
Heimild: Mbl.is












