Home Fréttir Í fréttum Áform um skrifstofuhótel á Hellu

Áform um skrifstofuhótel á Hellu

74
0
Teikning af fyrirhuguðum byggingum framan við Stracta hótel á Hellu sem sést efst á myndinni. Tölvuteikning

Eigandi Stracta hótels á Hellu hefur kynnt sveitarstjórn Rangárþings ytra áform um að reisa verslunar- og ráðstefnuhús, skrifstofuhótel og íbúðir á lóðinni framan við hótelið og óskað eftir heimild til að hefja skipulagsvinnu fyrir lóðina í samræmi við það.

„Ég hef lengi haft þetta í huga og nú liggur fyrir hönnun sem ég er sáttur við,“ segir Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta.

Samkvæmt framkvæmdaáætlun verður reist í áföngum 1.350 fermetra verslunarhús, 1.600 fermetra ráðstefnuhús auk minni verslunar- og þjónustuhúsa, tengibygginga og íbúða. Alls verða byggingarnar nærri sjö þúsund fermetrar samkvæmt tillögunni.

Framan við byggingarnar er gert ráð fyrir bílastæði fyrir 146 bíla. Miðað er við að framkvæmdir geti hafist í vor, gangi allt eftir, og að þeim ljúki á fyrri hluta ársins 2029.

Heimild: Mbl.is