Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 27.01.2026 Mosfellsbær. LED lampar fyrir götu- og stígalýsingu 2026

27.01.2026 Mosfellsbær. LED lampar fyrir götu- og stígalýsingu 2026

52
0
Mynd: Mosfellsbær

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í: LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu, MOS-202511505.

Tilboðið felst í að útvega 1.367 LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu í eldri hverfi í Mosfellsbæ ásamt og með í ný hverfi sem verið er að reisa. Svæðið sem lamparnir eru ætlaðir í samanstendur af húsagötum, opnum svæðum og stígum. Gerðar eru kröfur til þess að bjóðandi bjóði lampa sem uppfylla útlitskröfur auk tæknilegra og ljóstæknilegra eiginleika og komi vel út í lífferilskostnaðargreiningu, LCC.

Samningur nær til tveggja ára. Frávikstilboð verða ekki leyfð.

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, gudjon@liska.is frá og með 9. janúar 2026 og verður hægt að nálgast gögn til og með 19. janúar 2026.

Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti til gudjon@liska.is.

Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboða er til kl. 10:00 fimmtudaginn 29. janúar 2026.

Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Við opnun tilboða verða lesin upp nöfn bjóðenda og heildarlífsferilskostnaðarverð af tilboðseyðublaði.