Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 27.01.2026 Reykjavíkurborg. Elliðaár – Stígur í stað stokks

27.01.2026 Reykjavíkurborg. Elliðaár – Stígur í stað stokks

44
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Elliðaár – Stígur í stað stokks, útboð nr. 16240.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 

Verkið felst í gerð þriggja göngu- og hjólabrúa yfir Elliðaár á þeim stað sem áður var steyptur stokkur fyrir hitaveitulagnir. Innifalið í verkinu er viðgerð á núverandi stöplum stokks sem notaðir verða sem brúarundirstöður í verkinu.

Í verkinu felst jafnframt gerð göngu- og hjólastígs sem tengist núverandi stígum beggja vegna árinnar. Gerð á á lýsingu stígs og brúa er innifalin í verkinu. Innifalið í verkinu er fullnaðarfrágangur á áningarstað við hlið stígs á milli brúa 2 og 3 eins og sýnt er á uppdráttum sem og landmótun og gerð gróðursvæða eins og sýnt er á teikningum.

Áætluð lok framkvæmdatíma: 1. desember 2026.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:00: þann 7. janúar 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 27. janúar 2026.