Home Fréttir Í fréttum Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu

Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu

17
0
Tæplega 1.100 kaupsamningar voru undirritaðir í október , Vísir/Vilhelm

Fasteignamarkaðurinn er enn kaupendamarkaður, samkvæmt svörum fasteignasala við könnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Þeim fækkaði hins vegar úr 91 prósent í 79 prósent milli nóvember og desember sem töldu virkni markaðarins frekar litla eða mjög litla.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir desember. Þar segir einnig að tveir af hverjum þremur fasteignasölum hafi sagt að það kæmu að meðaltali þrír eða færri að skoða hverja eign í fyrstu viku á sölu. Fleiri mættu á opin hús í desember en þó virtist áhuginn minni en í byrjun október.

Á höfuðborgarsvæðinu er dýrast að leigja í Garðabæ, þar sem markaðsleiga nemur 306 þúsund krónum á mánuði að meðaltali. Leigan er lægst í Reykjavík en þar eru leiguíbúðir smærri að jafnaði. Utan landsbyggðarinnar er markaðsleiga hæst í Árborg, eða um 250 þúsund krónur.

Íbúðalánakjör banka og flestra lífeyrissjóða hafa batnað eftir að Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,25 prósent þann 19. nóvember síðastliðinn.

„Þrír stærstu viðskiptabankarnir brugðust við stýrivaxtalækkuninni með því að lækka vexti um 0,10 til 0,35 prósentustig líkt og sjá má í meðfylgjandi töflu. Allir lækkuðu þeir óverðtryggða breytilega vexti um 0,25 prósentustig. Óverðtryggðir fastir vextir voru lækkaðir um 0,10 til 0,35 prósentustig.

Vaxtalækkanir voru mismiklar eftir lengd fastvaxtatímabils, en vaxtalækkanir voru umfangsminni eftir því sem fastvaxtatímabilið er lengra. Fastir verðtryggðir vextir lækkuðu um 0 til 0,20 prósentustig og breytilegir verðtryggðir vextir á útistandandi lánum lækkuðu um 0 til 0,25 prósentustig,“ segir í samantekt HMS.

Þar segir einnig að kostnaður við uppbyggingu íbúða sé nú jafnmikill og hann var í upphafi árs 2018, ef tekið er tillit til verðlags og litið framhjá opinberum gjöldum. Gatnagerðagjöld, sem innheimt eru af sveitarfélögunum, hafi hins vegar hækkað mikið.

Heimild: Visir.is