Home Fréttir Í fréttum Sam­göngu­áætl­un að öllum lík­ind­um kynnt á morgun

Sam­göngu­áætl­un að öllum lík­ind­um kynnt á morgun

3
0
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. RÚV / Ragnar Visage

Samgönguáætlun til ársins 2040 var afgreidd á ríkisstjórnarfundi í dag. Hún verður að öllum líkindum gerð opinber á blaðamannafundi á morgun.

Fimm ár eru frá því samgönguáætlun var síðast samþykkt á Alþingi. Það er ekki síst vegna þess hve langt er síðan að töluverð spenna ríkir eftir þeirri nýju.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur boðað nýja forgangsröðun í jarðgangamálum þar sem ekki yrði hægt að ganga að því sem vísu að næstu jarðgöng verði á Austurlandi. Samkvæmt gildandi áætlun eru Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs, næst í röðinni en Eyjólfur hefur ítrekað að stjórnvöld séu ekki bundin af fyrri áætlunum.

Heimild: Ruv.is