Home Fréttir Í fréttum „Dapurlegar afleiðingar þess að forsætisráðherra hefur áhuga á byggingum“

„Dapurlegar afleiðingar þess að forsætisráðherra hefur áhuga á byggingum“

53
0

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er allt annað en hrifinn af hugmyndum forsætisráðherra um að reisa hús í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands. Þær séu dæmi um „dapurlegar afleiðingar þess að forsætisráðherra hefur áhuga á byggingum og skipulagsmálum“.

<>

Ríkisstjórnin kynnti á dögunum þingsályktunartillögu þar sem kveðið var á um hvernig minnast skyldi 100 fullveldisafmælis landsins. Auk viðbyggingar við Alþingishúsið sem vakið hefur mesta athygli var meðal annars lagt til að byggð yrði ný Valhöll og svo að loks verði lokið við byggingu húss yfir stofnun íslenskra fræða.

Það er einkum siðastnefnda byggingin sem Kári fettir fingur út í, í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið. Þar beinir hann orðum sínum einkum að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.

”Hann hefur nefnilega áhuga á byggingum og skipulagsmálum eins og Karl Bretaprins. Áhugans vegna virðist honum annaðhvort hafa gleymst að 1. desember 1918 hlutum við Íslendingar töluvert sjálfstæði frá Dönum eða honum hefur yfirsést að við erum að glata því aftur að hluta,“

skrifar Kári og spyr hvernig í ósköpunum það gat gerst. Spurningunni svarar hann, eðlilega, sjálfur og felst svarið í því að Danir eiga orðið nauðsynleg tæki í nútíma læknisfræði – eins og jáeindaskanna – en Íslendingar ekki. Bara á síðasta ári sendu Íslendingar 100 sjúklinga til Kaupmannahafnar í jáeindaskanna og í ár verða þeir að líkindum 200.

” Við getum ekki lengur sinnt sjúklingum okkar án þess að leita á náðir Dana. Það er með öllu óásættanlegt og í engu samræmi við þær væntingar sem Íslendingar höfðu í byrjun desember árið 1918. Það væri miklu nær andanum að baki fyrsta desember að halda upp á hundrað ára afmæli hans með því að flytja jáeindaskanna til landsins og endurheimta á þann hátt það sjálfstæði frá Dönum sem við viljum hafa og forfeður okkar börðust fyrir.“
Segir Kári að það sé mikilvægara fyrir íslenskt mál að halda lífinu í þeim sem tala það en að reisa hús yfir þá sem rannsakaða það og hvetur forsætisráðherra til að skipta um skoðun í málinu.

”Nýja skoðunin mín er að þetta sé dæmi um dapurlegar afleiðingar þess að forsætisráðherra hefur áhuga á byggingum og skipulagsmálum. Ég er handviss um að meirihluti landsmanna er mér sammála um þetta og því bendi ég forsætisráðherra á þann möguleika að fylgja fordæmi mínu og skipta um skoðun sem sagan hefur kennt okkur að hann geti auðveldlega og flytja það fé sem hann er í þann veginn að setja í hús vestur á Melum yfir í kaup á tæki til þess að hlúa að lösnu fólki. Það væri í miklu betra samræmi við þá forgangsröðun sem fólkið í landinu aðhyllist og ég veit að forsætisráðherra hefur oftast fylgt í lífi sínu og starfi og gengur undir nafninu: konur og börn í bátana fyrst. Ginnungagapið vestur á Melum má alltaf nýta til þess að jarðsetja nöldur og vondar hugmyndir sem þessa dagana berast úr hlöðnu steinhúsi við Austurvöll.“
Heimild: Eyjan.is