Home Fréttir Í fréttum Eldur í bílakjallara í nýbyggingu í Gufunesi

Eldur í bílakjallara í nýbyggingu í Gufunesi

19
0
Eldurinn kviknaði í bílakjallara í nýbyggingu í Gufunesi. mbl.is/Karítas

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan hálf sex í morgun eftir að eldur kviknaði í nýbyggingu í Gufunesi.

Gústaf Alex Gústavsson slökkviliðsmaður á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við mbl.is að allar stöðvar hafi verið kallaðar út eftir að tilkynnt hafi verið um eld og reyk í nýbyggingu í Gufunesi.

Gústav segir að tveimur stöðvum hafi verið snúið við en slökkvistarfi lauk rétt eftir klukkan 7 í morgun.

Hann segir að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn sem var í bílakjallara en húsið var mannlaust og iðnaðarmenn hafi verið að mæta þegar þeir urðu varir við eldinn. Eftir að búið var að slökkva eldinn var húsnæðið reykræst að hans sögn.

Heimild: Mbl.is